Upphafspóstur - Samskipti
Sæll kæri nemandi.
Ég heiti Anný Björg Pálmadóttir og mun leiðbeina þér í gegnum þessa önn í áfanganum Samskipti.
Kennsla áfangans fer fram á Moodle kennsluvefnum. Ef þú hefur ekki notað Moodle áður þá ferðu inn á á vef Verkmenntaskólans á Akureyri (vma.is) til að komast inn á Moodle. Þú finnur hnapp á vma.is sem stendur á Moodle. Þegar smellt er á hann, þá opnast forsíða Moodle kerfisins og á honum eru reitir þar sem þú ritar inn notendanafn og lykilorð.
Nemendur sem eru að koma nýjir inn þura að fara inn á https://lykilord.menntasky.is/ til að endurstilla/breyta aðgangsorði sínu. Verði einhver vandræði með tæknimál skal senda póst á hjalp@vma.is
# Nú finnur þú þinn áfanga „ SASK2SS05F – Samskipti - fjarkennsla
# Í fyrsta sinn sem þú kemur í þennan áfanga þarftu að gefa svokallaðan "Skráningarlykill"
# Hann er: godsamskipti
# Þú þarft bara að nota hann í þetta eina sinn til að komat í áfangann.
Þegar inn í áfangann er komið opnast heimasíða hans. Hún getur verið aðeins mismunandi útlits milli áfanga. En hægt er að sjá „Þátttakendur“: Þeir sem skráðir eru í áfangann. Mínir áfangar: Listi yfir þá áfanga sem þú hefur skráð þig í, sem þú getur notað til að hoppa á milli þeirra. Einkunnir: Þar getur þú séð einkunnir fyrir verkefnin þín.
Fyrir miðju eru kennsluvikurnar með upplýsingum um lesefni og verkefni vikunnar. Námsáætlun áfangans sérðu efst á heimasíðu áfangans. Skoðaðu hana vel. Þar eru upplýsingar um námsefni, yfirferð, námsmat o.fl.
Fyrsta verkefnið er komið inn ef einhverjar spurningar vakna eða þú þarft frekari skýringar á verkefninu þá sendir þú mér póst hér á Moodle skilaboðunum (eða í tölvupósti).
Ég mun síðan setja inn nýtt efni í síðsta lagi á mánudagsmorgni og þú skilar þá því verkefni fyrir miðnætti næsta sunnudag. Ef eitthvað kemur uppá sem hefur áhrif á námsframvindu þína, láttu mig þá vita og við reynum að finna lausn á því. Mikilvægt er að hafa samband fyrir verkefnaskil ef þú er t.d. lasinn og vilt óska eftir fresti á skilum.
Endilega sendu mér póst ef eitthvað er óljóst.
Ég vona að þér gangi vel í áfanganum :)
Kær kveðja, Anný