Verkefni (Lög og reglur)
Verkefni
Lög um réttindi sjúklinga, sjúkraskrá, þagnarskylda, siðareglur sjúkraliða
Verkefnalýsing: Kynnið ykkur lesefnið og svarið spurningunum sem fylgja. Afritið spurningarnar hér fyrir neðan og setja í skjal ásamt svörum og skilið í skilakassann.
Námsefni:
· Lög um réttindi sjúklinga: https://www.althingi.is/lagas/nuna/1997074.html
· Lög um sjúkraskrár: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2009055.html
· Siðareglur sjúkraliða: https://www.slfi.is/um-okkur/log-reglur-og-stefnur/sidareglur-sjukralida
· Lög um heilbrigðisstarfsmenn: https://www.althingi.is/lagas/154b/2012034.html
· Skráning: kafli 19 í kennslubók – Almenn hjúkrun, 1. þrep.
Svarið eftirfarandi spurningum:
1. Hver ber ábyrgð á því sem að þú skrifar inn í sjúkraskrá sjúklings?
2. Hvaða aðgang hefur sjúklingur að eigin sjúkraskrá?
3. Hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar áður en þú sem sjúkraliðanemi mátt skrifa í sjúkraskrá?
4. Hvaða upplýsingar þurfa að koma fram við hverja færslu sem þú skráir í sjúkraskrá?
5. Ábyrgðar- og eftirlitsaðilar sjúkrskrár sjá um eftirlit á sjúkraskrám og hvort allir vinni samkvæmt lögum, hvað gerist ef upp kemst að heilbrigðisstarfsmaður eða nemi hafi ekki farið að lögum (s.s. skoðað sjúkraskrá hjá einhverjum sem hann var ekki að sinna)?
6. Hvað má líða langur tími frá því að þú framkvæmir hjúkrunarþátt þar til að þú átt að vera búin að skrá í sjúkraskrá?
7. Hvaða upplýsingar þarf að skrá að lágmarki í sjúkraskrá þegar að sjúklingur fær meðferð á sjúkrastofnun?
8. Hefur sjúklingur rétt á því að það sem skráð er í sjúkraskrá vegna meðferðar sjúklings sé bara aðgengilegt þeim sem skráir upplýsingarnar?
9. Má eyða upplýsingum úr sjúkraskrá sjúklings?
10. Hver eru markmið laga um réttindi sjúklinga?
11. Hvernig þjónustu á sjúklingur rétt á?
12. Má framkvæma meðferð á sjúkling án hans leyfi?
13. Sjúklingur hafnar meðferð, hvað skal gera?
14. Hverjir eiga að koma að meðferð sjúklings?
15. Er heilbrigðisstarfsmanni heimilt að skorast undan störfum sem stangast á við trúarleg eða siðferðileg viðhorf hans, svo lengi sem tryggt sé að sjúklingur fái nauðsynlega heilbrigðisþjónustu?
16. Er einhvern tíman leyfilegt að brjóta þagnarskyldu sem heilbrigðisstarfsmaður og ef svo, hvenær er það?
17. Lestu yfir siðareglur sjúkraliða og veldur þér eina til tvær reglur þar sem þú gefur dæmi um brot á henni.
18. Hvað er lífssaga, til hvers er hún hjálpleg og hvað getur hún t.d. innihaldið?
19. Útbúðu líklega framvindunótu/-skráningu út frá því sem stendur (í kassanum) um Ingibjörgu á bls. 278.
20. Hvernig skráningu ert þú vön/vanur/vant út frá þeirri vinnu sem þú hefur unnið?