Verkefni 1. 

Svaraðu eftirfarandi spurningum og skilaðu þeim ásamt spurningunum í skilakassa.

Námsefni: eru glærur um smitgát og greinin "Hreinar hendur hindra smit". Myndband um handþvott og sterila hanska/svæði.   

  1. Lýstu smitferlinu (smithringnum) með eigin orðum og komdu með nokkur dæmi til að rjúfa smitkeðjuna (forvörn við sýkingum).  
  2. Lýstu hvernig þú getur séð eða metið að um sýkingu sé að ræða.
  3. Svaraðu eftirfarandi spurningum úr greininni "Hreinar hendur hindra smit".
    1. Handþurrkun:
      1. Gerður var samanburður á fjórum aðferðum á þurrkun, hvaða aðferð var talin best? 
      2. Gerður var samanburður á handblástri sem þurrkun og þurrkun með pappírshandþurrku? hvort kom betur út?
      3. Hvað er mikilvægt að hafa í huga þegar að hendur eru þurrkaðar? 

3.2. Hverjar eru helstu ástæðurnar sem gefnar eru upp í greininni fyrir handhreinsunarheldni?

4.3. Hvað er það sem skiptir máli varðandi sápunotkun í handhreinsun samkv. greininni.

5. Hver er munurinn á sýkjandi flóru, staðbundinni flóru og skammlífari flóru?

6. Hver er algengasta smitleiðin?

7. Hvernig er best að sápubrúsar séu hannaðir svo þeir skapi minnstu hættu á sýkingu? og hvernig skal skrúfa fyrir krana eftir handþvott? 

8. Lýstu því hvað skiptir máli við meðhöndlun á sterilum svæðum/áhöldum.

9. Gerðu fyrstu verklagsregluna í vinnubókina (sjá verkefnalýsingu um vinnubók-verklagsreglur) í sér word skjal þar sem þú skrifar niður verkferil við að fara í sterila hanska. Þú geymir það í þeirri skrá og skila henni síðar á önninni ásamt öðrum verklagsreglum. 

Senest ændret: søndag den 25. januar 2026, 11:45