Helstu hjálpartæki við leit að áreiðanlegum heimildum:

Leitir.is - upplýsingar um bækur, hljóðbækur, rafbækur, tímarit, tímaritsgreinar, ljósmyndir, myndefni, tónlist, hljóðrit, nótur, skýrslur og lokaverkefni háskólanema. 

Gegnir.is - samskrá íslenskra bókasafna. 

Hvar.is - landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. 

Timarit.is - veitir aðgang að milljónum myndaðra blaðsíðna á stafrænu formi af þeim prentaða menningararfi sem varðveittur er í blöðum og tímaritum frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. 



Gegnir.is

- Gefur möguleika á að þrengja leitir s.s. höfundur / titill / efni

- Gefur möguleika á ítarleit t.d. til að tengja tvö ólík efni

-  Auðvelt að sjá hvort um tímaritsgreinar, bækur eða námsritgerðir er að ræða



Leitir.is

- Með því að notfæra sér dálkana vinstra megin er fljótlegt að finna mismunandi form

- Einnig hægt að sjá strax hvað verkið er til í mörgum útgáfum

- Hægt að safna í rafræna hillu, sem er aðgengileg á persónulegu svæði


Tímarit.is :

- Leitar í tímaritum og dagblöðum, einnig hægt að velja tímabil



Hvar.is :

- orðabækur allra tungumála sem kennd eru í skólanum eru á Snöru.is (endurgjaldslaust í skólanum)

- rafræn tímarit í öllum fögum, greinar í fullri lengd


Ordabanki.hi.is

- þar má nálgast þýðingar á fræðiheitum

- veitir jafnframt aðgang að hugtakaskilgreiningum fagorða á íslensku og fleiri tungumálum


Heimildavinna er :
- vönduð vinnubrögð
- vanda vel val á efnisorðum og nota orðabækur
- leitartækni og mat á gæðum og áreiðanleika heimilda
- vitna nákvæmlega í allar heimildir sem notaðar eru 



Hvað er ritstuldur?

- klippa og líma texta af vefnum án þess að vísa hvaðan heimild er tekin
- kaupa, stela eða endurskrifa ritgerðir
- nota hugmyndir eða tilvitnanir úr verkum án þess að geta heimildar
- umorða setningar illa/lítið


Á heimasíðu VMA má finna frekari leiðbeiningar um upplýsingalæsi og heimildaskráningu. Þar má einnig finna tenglasafn á hinar ýmsu námsgreinar. Til að komast inn á þá síðu:

vma.is

Þjónusta

Bókasafn



Síðast breytt: þriðjudagur, 25. ágúst 2020, 10:34 AM