Annarpróf 2 - atriðalisti
Annarpróf 2
· Hlutverk sjúkraliða í endurhæfingu í ADL
· Munurinn á endurhæfingu á heimahjúkrun
· Geta gefið dæmi um andlegar, líkamlegar og félagslegar kröfur sem getur þurft í athafnir.
· Vita hvað athafnagreining er og hvað sé athugað til að greina athafnir
· Hvernig er hægt að nýta sér lífssögu fólks við að komast að því hvað þau vilja geta gert sjálf eða til að hvetja þau til að gera.
· Geta nefnt hjálpartæki til daglegra athafna
· Vita hvað eftirfarandi merkir: helftarlömun, þverfaglegt samstarf, sjálfsvitund, efling, bjargráð, vinnustaðamat.
· Skiptingu ADL í þrjú meginsvið og dæmi um það
· Þekkja pýramída Maslows og geta tengt við þarfir aldraðra á hverju sviði
· Nefna þætti sem stuðla að eflingu aldraðra og hvað felist í þeim þáttum.
· Hvað væri hægt að hafa í lífssögubók, tilgangur og notkunargildi hennar.
· Geta nefnt þrjár leiðir til að nýta bjargráð skjólstæðings.
· Dundkarfa og hver er tilgangur hennar.
· Tilgangur þess að skipuleggja daga aldraðra
· Ástæður- ávinningur af því að stunda líkamsþjálfun fyrir aldraða, geta gefið dæmi um æfingar fyrir rúmliggjandi, þann sem getur ekki staðið og með “fulla” hreyfigetu.
· Munurinn á mat, fæði og næringu
· Orkuþörf (Hitaeiningaþörf) aldraðra, próteinþörf þeirra, kolvetna og fitu.
· Hvaða öldrunarbreytingar hafa áhrif á næringarþarfir og starfsemi líkamans.
· Hvað er vannæring og hvernig er hægt að meta hana, athuganir tengt henni og meðferð
· Orsakir hægðatregðu og hvað sé hægt að gera til bóta á henni
· Þekkja ólíkar tegundir tengslaneta
· Mikilvægi tómstundaiðju fyrir aldraða, hvar er hægt að fara í hana, hvað hefur áhrif á val þeirra.
· Mun á verklegri og persónulegri aðstoð, hver á rétt á henni
· Þekkja hvað fagaðili og fulltrúi yfirvalda sé, hvað er hæfni, vanhæfi, þagnarskylda, upplýsingaskylda skjólstæðinga, upplýsingaskylda heilbrigðisstarfsfólks, tilkynningaskylda, skráningarskylda, lögræðissvipting, réttur til sjálfsákvörðunar.
· Hver getur sótt um lögræðissviptingu, hvað er lögráðamaður og tilhvers er hann
· Þverfaglegt samstarf og þekkja atriði sem einkenna gott og faglegt samstarf
· Hvað felst í upplýstu samþykki, hvað er valdbeiting og skilyrði fyrir henni, er hægt að gera undanþágu á að beita ekki nauðung (leyfi til að beita valdi) og hvernig skal skráningu vera háttað vegna valdbeitingar?
· Hvað er velferðartækni, kostir þess og dæmi um slíka tækni