Um val á rafbúnaði
متطلبات الإكمال
General news and annou
Baldvin Björgvinson ritaði eftirfarandi hugleiðingar á FB síðuna íslenskir rafvirkjar. Gott fyrir ykkur að skoða og pæla í.
Val á réttum varbúnaði fyrir íslenskar aðstæður, stutta útgáfan, sem fagfólk ætti að skilja.
Eftir að hafa legið yfir þessum málum árum saman þá er niðurstaðan eftirfarandi.
Fyrst vil ég taka fram að þetta eru ekki mínar persónulegu skoðanir heldur byggir þetta á upplýsingum úr Handbókinni / staðlinum, reglugerðum, lögum og þó fyrst og fremst upplýsingum frá framleiðendum.
Val á réttum bilunarstraumsrofa.
Það á einfaldlega að velja gerð B af bilunarstraumsrofa. Ef önnur, einfaldari og ódýrari gerð, er valin þá þarf að rökstyðja hvers vegna það var hægt að velja aðra gerð en B.
Hægt er að nota A gerð ef ENGIN hætta er á að hraðastýrður mótor sé á grein tengdum þessum bilunarstraumsrofa. Hraðastýrður mótor getur verið hvaða mótor sem er í dag, ryksuga eða annað heimilistæki. Á Íslandi er meirihluti raflagna íbúðarhúsa þannig tengdur að tenglar eru á ljósalögnum. Allir tenglar ættu að vera á bilunarstraumsrofa sem ræður við truflanir frá hraðastýringum. Gerð B á að nota þar sem jafnstraumur getur lekið til dæmis frá rafhlöðum, sólarsellum osfrv. Hvar er ekki hætta á að rafhjóli eða öðru rafhlaði verði ekki stungið í samband? Svarið er líklega hvergi. Þess vegna er B rétta valið. A er eingöngu hægt að nota á lagnir sem engir tenglar eru á, til dæmis ljósalagnir. F er hægt að nota fyrir föst heimilistæki, þvottavél, þurrkara, uppþvottavél, ísskáp og þess háttar þar sem engin hætta er á að tækið verði tekið úr sambandi og hleðslutæki fyrir rafhlað stungið í samband. AC gerðina hafa flestir innflytjendur tekið úr sölu enda má eingöngu nota þá þar sem enginn rafeindabúnaður er.
Hvers vegna? Truflanir og lekastraumur frá rafeindabúnaði getur “blindað” bilunarstraumsrofa þannig að þeir virka ekki. Þess vegna er áríðandi að bilunarstraumsrofi sé valinn sem virkar sama hvaða rafbúnaður er tengdur honum. Sem sagt nota B nema hægt sé að rökstyðja annað val.
Bilunarstraumsrofum þarf einnig að fjölga. Það er vegna þess að allur rafeindabúnaður er með einhvern lekastraum og í ræsingu, til dæmis þegar rafmagn fer af og kemur á aftur þá er þessi lekastraumur margfaldur í ræsingunni. Það getur slegið út bilunarstraumsrofa.
Val á réttu sjálfvari.
A er “viðkvæmast” og er eiginlega aldrei notað. B var mest notað en framleiðendur sjálfvara vilja að notuð sé gerð C í dag fyrir alla almenna notkun svo sem LED og annan rafeindabúnað sem er næstum allt á heimilum og í atvinnuhúsnæði í dag. D er fyrir ræsingu skammhlaupsmótora og sambærilegan búnað.
Hvers vegna? Rafeindabúnaður er með sex til tífaldan ræsistraum, tekur sem sagt sex til tíu sinnum meira í ræsingu en í gangi. Rafeindalýsing svo sem LED tekur hins vegar mjög lítinn straum í notkun þannig að þetta verður ekki oft vandamál en framleiðendur mæla með C fyrir LED og annan rafeindabúnað.
Varbúnaður á ekki að slá út þegar allt er í fullkomnu lagi. Varbúnaður á að slá út þegar hann á að slá út. Þess vegna er áríðandi að valið sé rétt.
Við þetta er full ástæða að bæta eftirfarandi við.
Annar fullkomnari varbúnaður svo sem vör með neistaskynjun er orðinn skylda víða um Evrópu til dæmis í húsnæði þar sem fólk kemst ekki út sjálft, fangelsi, hjúkrunarheimili, blokkir osfrv. en einnig í húsnæði sem er ómetanleg söguleg verðmæti og á söfnum.
Eldinga- og yfirspennuvörn er einnig nokkuð sem alls staðar mætti bæta við í aðaltöflur húsa. Ódýr og einfaldur búnaður sem getur varið mikil verðmæti.
Persónulega tel ég börnin mín og barnabörnin vera ómetanleg verðmæti og vel þess vegna besta varbúnaðinn sem í boði er hverju sinni þegar ég græja varbúnað heima hjá þeim. Flestir viðskiptavinir rafverktaka væru sammála því ef þeir væru spurðir.
Góðar stundir.
ncements
(لم تُنشر أي إعلانات بعد.)