Farðu á aðalefni
moodle.vma.is
  • Heim
  • More
Íslenska ‎(is)‎
Dansk ‎(da)‎ English ‎(en)‎ Íslenska ‎(is)‎ Polski ‎(pl)‎ العربية ‎(ar)‎
Þú ert tengd(ur) sem gestur
Innskrá
moodle.vma.is
Heim
Opna allt Loka öllu
  1. Mitt Moodle
  2. ÍSLE3ÞH05-F
  3. 5. febrúar - 11. febrúar
  4. 3.2. Vinnuspurningar upp úr myndbandinu Spúútník týpur

3.2. Vinnuspurningar upp úr myndbandinu Spúútník týpur

Skilyrði fyrir áfangalokum
Opened: mánudagur, 5. febrúar 2024, 8:00 AM
Due: þriðjudagur, 13. febrúar 2024, 11:59 PM

Spurningar upp úr myndbandinu  „Spúútnik týpur“. Vinsamlegast svarið eftirfarandi spurningum eftir bestu getu og munið að þetta er hluti af vinnu- og lokaeinkunn. 


a) Af hverju byrjaði fólk allt í einu að kaupa notaðan fatnað skv. höfundi ritgerðar? 


b) Hverjir versluðu í upphafi aðallega í Spútnik og hvernig breyttist það?


c) Af hverju telur þú að verslunareigendum í Kringlunni hafi í fyrstu ekki staðið á sama þegar verslunin opnaði þar? Hvaða hugmyndir gætu legið þar að baki? 


d) Rannsóknin sem vitnað er í var unnin fyrir nokkrum árum. Telur þú að hugmyndir og meðvitund íslenskra neytenda hafi breyst síðan þá? Er t.d. ungt fólk í dag meðvitaðri neytendur og betur upplýst um umhverfisáhrif fataiðnaðarins og kaupir þess vegna notuð föt? 


e) Segðu frá áhrifum og þróun pönksins í tengslum við tískuheiminn. Hvað gerist þegar klæðaburður okkar fer frá því að vera á jaðrinum og verður miðjaður? 


f) Hvernig notum við fatastíl og smekk til að skilgreina okkur? 


g) Hvað á höfundur við með því að gömul föt fari í gegnum umbreytingarferli?  En hvað er átt við þegar fjallað er um tískuforræði? Hvernig getur neysla/kaup á gömlum fatnaði haft áhrif á tískuforræðið?



Þú ert tengd(ur) sem gestur (Innskrá)
Data retention summary
Get the mobile app
Powered by Moodle