MMÆL4MS03BA - Mælitækni og mælitæki
Section outline
-
-
Ég vil biðja ykkur að taka þessa könnun snöggvast bara svo ég geti rétt aðeins glöggvað mig á nemendahópnum svona í upphafi.
-
Hér er rafræn korktafla fyrir umræður um efni áfangans (https://padlet.com/helgivalurh/m-lit-ki-og-m-lit-kni-l031o0egrfrtwbd2).
Þátttaka í umræðum gildir 10% af lokaeinkunn í áfanganum. Hver nemandi þarf að taka nokkrum sinnum virkan þátt í umræðunum til að skora mest 15 stig. Misjafnlega mörg stig eru gefin eftir því hve mikið þarf að leggja í þátttökuna.
3 stig eru gefin fyrir að
- koma með spurningu þar sem vísað er í lög eða reglugerð og fylgja henni eftir með dæmi og leiða umræðuna í kjölfarið
- reyna að svara spurningu sem annar nemandi ber fram og rökstyðja svarið (hér má vitna í heimildir á netinu eða í heimildamann)
- benda á tilfelli þar sem eitthvað í bransanum er ekki í samræmi við núgildandi lög og reglugerðir
2 stig eru gefin fyrir að
- taka þátt í umræðuþræði sem einhver annar hefur stofnað og setja fram aðra eða tengda spurningu
- koma með röksemdir sem benda á misræmi eða draga fram hve erfitt það getur verið að fylgja ákvæðum byggingarreglugerðarinnar
- skrifa þakkir til einhvers sem hefur komið með góðan punkt í umræðum og jafnvel draga pínu saman meginmálið
1 stig er gefið fyrir að (mest hægt að fá 7 stig)
- taka þátt í umræðu án þess að bæta neinu nýju við (dæmi: ég er alveg sammála)
- deila myndbandi sem tengist vinnuvernd eða öryggi á vinnustað
Athugið að kennari áskilur sér rétt til að eyða út óviðeigandi umræðu eða athugasemdum og getur dregið af punktum fyrir slíka hegðun. Sé um ítrekað brot að ræða getur kennari lokað á frekari þátttöku viðkomandi nemanda.
-
-
-
Hér er myndband sem sýnir vel hvernig hægt er að fara styttri leiðina í að mæla hæðarmun á tvo vegu.
Íslenskur texti fæst með því að ýta á tannhjólið neðan við myndbandið og velja íslenskan texta.
-
Hér hefur gervigreindin búið til skýringablað sem tekur þetta þokkalega saman fyrir okkur.
-
Hér er örstutt myndband sem sýnir speglun geislans sem getur orsakað falskar mælingar.
Íslenskur texti fæst með því að ýta á tannhjólið neðan við myndbandið og velja íslenskan texta.