الخطوط العريضة للقسم

    • Want to learn how to design effective academic posters? Join ...
       

      Veggspjaldakynningar 

      Föstudaginn 8.maí 2026 munið þið standa fyrir veggspjaldakynningum. Kynningin verður á ganginum við M01 milli kl. 11:10-13:00. Við verðum með heitt á könnunni og súkkulaðimola  með því.

      Öll eru velkomin - gestir og gangandi. 

       Ferlið er þannig að þið mætið kl.11:00 til að setja upp veggspjaldið ykkar. Þið þurfið svo að vera til staðar til þess að sagt frá verkefninu ykkar. Við munum hefja stundina á því að þið kynnið ykkur öll og segið frá verkefninu ykkar í mjög stuttu máli. 

      Eftir það eruð þið "stand by" til þess að spjalla við gesti og gangandi um verkefnin ykkar. 

      Við klæðum okkur í betri fatnað þennan dag enda er þetta uppskeruhátíðin ykkar. 

      Nánari verkefnislýsingu má sjá í skjalinu sem fylgir. 

      ATH. Þau sem eiga ekki heimangengt á þessum tíma skili veggspjöldunum sínum í gegnum Moodle og ég hengi þau upp fyrir ykkur. 

       

      TEAMS-KYNNING OG VÖRN

      Samkvæmt námsáætlun og námsmatsþáttum er hluta einkunnagjöf áfangans í formi frammstöðu í vörn og kynningu verkefnisins. Þar sem hér er um að ræða áfanga í fjarnámi fara kynningarnar fram í gegnum TEAMS. Miðað er við að ein málstofa fari fram og verður boðað til þeirra málstofu í vikunni. 

      Málstofurnar fara þannig fram að hver nemandi fær um 10 mínútur til þess að kynna verkefnið sitt og svara spurningum um það. Þið útbúið stutta glærukynningu sem þið deilið með okkur á fundinum  með því að deila skjánum ykkar. Þið segið svo frá ykkar verkefni og svarið svo nokkrum spurningum um það í lokin.  Nánari upplýsingar er að finna í skjali hér að neðan. 

      ATH. að þið þurfið ekki að rýna verkefni hvort hjá öðru, en megið gjarnan spyrja spurninga í vörninni.