Przegląd sekcji

    • Otwarto: poniedziałek, 16 marca 2026, 07:00
      Zamknięto: poniedziałek, 23 marca 2026, 23:59
      • Undirbúningur fyrir próf

          

        1. kafli: Þar legg ég mesta áherslu á samvægi bls. 18 og svo hin ýmsu jafnvægi sem koma þar á eftir. Þ.e vökvajafnvægi, varmajafnvægi, sýru og basajafnvægi (ekki leggjast of mikið í þann kafla, hann er dáltið flókinn) og svo blóðsykurjafnvægið. Þetta eru þau jafnvægi sem þið skuluð skoða.

        2. kafli: Skoðið vel orsakir frumulöskunar bls 28 - 30. Orsakir frumulöskunar og viðbrögð frumna við álagi eru mikilvægir þættir. Það eru þættirnir á bls. 30 til 32 með feitletruðu orðunum. Þekkja drep og ensímin sem mælast í blóðvökvanum í drepi bls. 33. Bls: 34-35 eru bólguviðbrögð það skuluð þið þekkja ásamt atburðarrás bólguviðbragða sem og almenn og staðbundin bólguviðbrögð. Bls. 36- 37 kunna ramman og svo skuluð þið skoða glósur um ónæmisviðbrögðin því sumt er svolítið flókið hjá honum í þessum kafla. Bls. 38 – 41, leggið áherslu á líkamsfrumur - er skipt í þrjá megingerðir eftir hæfileikum þeirra til að endurnýja sig. Skoðið það vel.

        3. kafli: Lesið vel um mengun bls. 43 -46. Skoðið svo töflu bls. 47 um efni í sígarettureyk. Lesið vel bls. 51 -54 að raflost. Satt að segja legg ég ekki mikla áherslu bls. 55 - 61. Það kemur fram í svo mörgum öðrum áföngum. En svo legg ég mikla áherslu á restina af kaflanum, það er 62 - 68.

        4. kafli: Hann skulu þið lesa vel nema bls. 84 og 85. Tafla bls. 81 er skemmtileg og gaman að spyrja úr henni, þ.e munur á hegðun góðkynja og illkynja æxla.

        5. kafli: Hann er stuttur og lesa hann allan.

        6. kafli: Hann er líka tekinn allur og er býsna auðskilinn í bókinni.

        7. kafli: Hann tökum við allan.

         

        Gangi ykkur súper vel 😊

         

        Bestu kveðjur, Anný