Ritgerð - þú hefur 2 vikur til að vinna þetta verkefni (23. mars - 5. apríl). Síðasti skiladagur er 5. apríl
Section outline
-
Heimildarverkefni (ritgerð) í samskiptum.
Þú skrifar 1000-1300 orða heimildaritgerð um eitthvað efni sem þú velur þér. Efnið verður að tengjast samskiptum, samkennd, jafnrétti, fordómum, mannréttindum eða mannvirðingu út frá heimildum eða gera útdrátt úr bók um samskipti.
T.d. er hægt að skrifa um samskipti við heilabilaða, samskipti í þjónustu störfum, samskipti unglinga, samskipti í hjúkrun, samskipti hjá einstaklingum með heilabilun, málstol eða annað sem þér dettur í hug.
Hafa skal forsíðu með titli og helstu upplýsingum, 1,5 línubil, 12 punkta skýrt letur. Það þarf að setja tilvísun á eftir hverju efni sem tekið er úr heimild og gera heimildaskrá. M.a. er hægt að sjá hvernig uppsetning og skráning heimilda er á þessari slóð: https://www.unak.is/static/files/bokasafn/APA/tilvisanakerfi-apa2020.pdf
Í inngangi og lokaorði setur þú það sem þú vilt að komi frá þér sjálfum. Í inngangi kynnir þú efnið og t.d. ástæðu fyrir vali efnis, í lokaorð dregur þú saman ritgerðarefnið og þá þína afstöðu eða álit á því.
EF einhverjar spurningar vakna þá endilega sendið mér skilaboð með fyrirspurnum/vangaveltum.
-
Opened: mánudagur, 23. mars 2026, 7:00 AMDue: sunnudagur, 5. apríl 2026, 11:54 PM
-