Nemendur eiga með hjálp teikninga og upplýsinga að öðlast dýpri þekkingu á uppbyggingu
einstakra vélarhluta, hvernig þeir starfa, geta metið ástand þeirra. Í þessum áfanga er fjallað
um ræsiloft og ræsiloftskerfi stórra tvígengisvéla, einstaka hluti þeirra og öryggisþætti, afgaskerfi, skólp- og sorakerfi, sjókerfi og ferskvatnskerfi til almennra nota. Fyrirkomulag í
vélarrúmi og austurskiljur. Fjallað er um legur, þ.m.t. hvítmálmslegur, uppbyggingu og gerð
þeirra. Fjallað um krafta í bulluvélum, um sveiflumyndun í vélum og vélakerfum, um eigin
tíðni, um gerð og hlutverk dempara og eftirlit með þeim, um byggingu meðalhraðgengra og
hraðgengra dísilvéla og ýmis rekstraratriði varðandi svartolíubrennslu og gangtruflanir. Í hinum verklega þætti er áhersla lögð á eftirfarandi: Keyrslu vélarrúms þjálfuð viðbrögð við gangtruflunum (gert í vélarrúmshermi). Skilvindur, viðhald á þeim og rekstur. Þrýstivökvakerfi og
vökvagíra svo og eldsneytiskerfi, háþrýstivökvakerfi, spilkerfi þar sem glussi er nýttur til
framdriftar. Mismunandi gerðir glussa-spilkerfa. Kröfur flokkunar félaga til ýmiskonar vélabúnaðar kynntar.
- Teacher: Vilhjálmur G. Kristjánsson